

XD - Árborg

Fjóla Kristinsdóttir


Fjóla Kristinsdóttir í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Árborg - Sveitastjórnarkosningar 2022
Fjóla Kristinsdóttir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir Sveitastjórnarkosningar 2022
ÁRBORG OKKAR ALLRA

Ábyrgur rekstur
Ábyrgur rekstur er forsenda þess að sveitarfélagið
geti veitt nauðsynlega grunnþjónustu. Einnig þarf að
leita allra leiða til að stilla í hóf álögum og gjöldum á
íbúa og fyrirtæki.
Fjölbreytt atvinnustarfsemi
Til að styrkja tekjustofna sveitarfélagsins þurfum við að laða að okkur fjölbreytta atvinnustarfsemi og auka þannig atvinnumöguleika íbúa. Því er gríðarlega mikilvægt að innviðir sveitarfélagsins, s.s. heitt og kalt vatn ásamt fráveitumálum, standi undir þeirri uppbyggingu.
Skýr framtíðarsýn
Mikilvægt er fyrir sveitarfélagið að hafa skýra framtíðarsýn og vinna áfram að því að gera alla Árborg að eftirsóknarverðum stað til að búa á.

„Það er gott að búa í Árborg. Hér ólst ég upp og hér hef ég alið upp mín börn ásamt manni mínum Snorra Sigurðarsyni fasteignasala. Börnin okkar þrjú eru Daníel, Ísabella og Elín Aðalheiður, svo eigum við eina tengdadóttur, Rebekku, og eitt barnabarn hana Viðju.
Ég hef tekið virkan þátt í sjálfboðavinnu á sviði íþrótta sem og annarra trúnaðarstarfa í samfélaginu.
Ég brenn fyrir sveitarfélaginu mínu og vil láta gott af mér leiða."






REYNSLA

Núverandi staða
Sjálfstætt starfandi
Verkefni tengd kennslu.
Umsjón með námskeiðinu Velferð í fjármálum við Fræðslunet Suðurlands.
2014-2021
Landsbankinn á Selfossi
Viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði.
Viðskiptatengill.
2011-2014
Verkefnastjóri á velferðarsviði.
Sveitarfélagið Árborg
2009-2010
Verkefnastjóri virkniúrræða.
Vinnumálastofnun

MEÐMÆLI

„Fjóla er ekki bara klár á bókina, hún hefur líka afburðagáfur þegar kemur að fólki; að sjá ólík sjónarmið og sætta þau. Hún hefur líka þá fágætu gáfu að átta sig á ef hún þekkir ekki nógu vel til einhvers og er tilbúin að hlusta á aðra. Einmitt þess vegna treysti ég Fjólu og hennar dómgreind.”
Ingunn Agnes Kro, stjórnarmaður

Gefur sig alla í verkefnin
„Fjóla tekst á við hlutina af einlægni og um leið mikilli festu. Hún er fylgin sér og gefur sig alla í að klára verkefni og ná þeim árangri sem markmið segja til um.“
Brynjar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Sessor

Kraftmikil og dugleg
„Fjóla er samkvæm sjálfri sér og hefur húmor fyrir lífinu. Hún er klár kona, kraftmikil og dugleg, sem tekst á við áskoranir af æðruleysi og er óhrædd við að leggja sitt á vogarskálarnar. Svo er hún einstaklega skemmtileg að vera í kringum.“
Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri
Hlustar á aðra
Sér stóru myndina
„Fjóla sér stóru myndina í stað
þess að festast í smáatriðum
og hefur einstaka færni að sjá
tilgang og tækifæri í því sem
verður á vegi hennar.“
Berglind Magnúsdóttir, félagsráðgjafi
Skipulögð
„Fjóla er skipulögð, drífandi, hugmyndarík og réttsýn. Hún kemur hlutunum í verk og engar hugmyndir eru óframkvæmanlegar í hennar huga.“
Ágúst Stefánsson, lögfræðingur
Heiðarleg
Fjóla er drífandi, jákvæð, einlæg, ákveðin og heiðarleg. Henni er umhugað um fólk, er með ríka réttlætiskennd og drífur verkefni áfram af miklum krafti. Það er gefandi að hafa Fjólu í kringum sig,
Fjóla er allra.
Anna Lára Guðfinnsdóttir,
mannauðsstjóri BL

